Leiðandi á Íslandi í
UV-hreinsun vatns

Vatnshreinsun · Rafmagn og stýringar

Leiðandi á Íslandi í UV-hreinsun vatns. Uppsetning og þjónusta um allt land.

Við seljum, setjum upp og þjónustum UV- og ósonbúnað frá ULTRAAQUA fyrir fiskeldi, vatnsveitur og vinnslur — og tökum að okkur fjölbreytt verkefni tengd rafmagni.

Óska eftir tilboði 869 1221
Þrjú ULTRAAQUA UV-kerfi uppsett í fiskeldisstöð
  • Vatnshreinsun
  • Rafmagn
  • Uppsetning
  • Ráðgjöf
  • Þjónusta um allt land

Vatnshreinsun · ULTRAAQUA

Sótthreinsun vatns — án efna og aukaafurða

Lavango er umboðsaðili ULTRAAQUA á Íslandi, dansks framleiðanda UV- og ósonkerfa frá Álaborg. Búnaðurinn er í notkun víða um land — meðal annars í inntaksvatni fiskeldisstöðva og neysluvatni sveitarfélaga.

Yfirlitsmynd af vatnshreinsun í fiskeldi, vatnsveitu, fiskvinnslu og sundlaug
  • Fiskeldi Inntaksvatn, RAS-kerfi og brunnbátar
  • Neysluvatn Neysluvatn og grunnvatn
  • Fráveita Ósonhreinsun frárennslis — reiknuð ósonþörf
  • Fiskvinnsla Vinnsluvatn í matvælaframleiðslu
  • Sundlaugar og baðstaðir Minna klóramín, heilnæmara vatn
  • Iðnaðarvökvar Kælivatn, frárennsli og endurnýting
  • Dýragarðar og sædýrasöfn Heilbrigt vatn fyrir dýrin

Fráveita · Reiknilíkan og hermun

Við reiknum út hve mikið óson þarf

Með reiknilíkani og hermun (simulation) metum við hve mikið óson þarf til að brjóta niður þau efni sem fjarlægja þarf úr vatninu — í fráveitu, iðnaðarfrárennsli eða endurnýtingarkerfum. Þannig er kerfið rétt stærðað frá upphafi: hvorki of lítið né dýrara en þörf er á.

  • Fráveita sveitarfélaga og iðnaðar
  • Frárennsli frá fiskvinnslu og fiskeldi
  • Niðurbrot lífrænna efna, litar og lyktar
Fá útreikning á ósonþörf

Tæknin

UV-C · 254 nm

UV-sótthreinsun

UV-C ljós gerir bakteríur, veirur og sníkjudýr óvirk á broti úr sekúndu. Engum efnum er bætt í vatnið, engar aukaafurðir myndast og sýrustig, hiti og bragð haldast óbreytt.

Kerfin fást úr rafpóleruðu ryðfríu stáli (SS316L) fyrir kaldan sjó og ferskvatn, eða úr plasti (PP/PEHD) fyrir heitan sjó og tærandi vatn.

O₃

Ósonhreinsun

Óson er framleitt á staðnum úr súrefni og er eitt öflugasta oxunarefni sem til er. Það brýtur niður örverur og lífræn efni, dregur úr lit og gruggi — og verður síðan aftur að súrefni.

Hentar vel í endurnýtingarkerfi (RAS) í fiskeldi, fráveitu, stærri vatnsveitur og iðnað.

AOP

Háþróuð oxun

Samspil UV og oxunar brýtur niður torleyst efni sem venjuleg sótthreinsun ræður ekki við — til dæmis geosmín og MIB sem valda moldarbragði af eldisfiski í RAS-kerfum.

Þjónusta Lavango

Ráðgjöf og stærðarval

Við metum rennsli, vatnsgæði og tærleika vatnsins (UVT) og veljum kerfi sem skilar réttum skammti fyrir þær örverur sem þarf að ráða við. Vatnssýni má greina á rannsóknarstofu ULTRAAQUA.

Uppsetning og gangsetning

Lagnir, rafmagn, stjórnskápur og viðvaranir — frá afhendingu til gangsetningar.

Þjónusta og varahlutir

Árleg skoðun, UV-perur og kvartshólkar. Mælt er með að skipta um perur á allt að tveggja ára fresti svo skammturinn haldist réttur.

Rafmagn og stýringar

Fjölbreytt verkefni tengd rafmagni

Við tökum að okkur alls kyns verkefni tengd rafmagni — raflagnir, stýringar, uppfærslu eldri kerfa og orkusparnað. Verk stór sem smá, um allt land.

Ræðum verkefnið Merktar lagnir að UV-perum með grænu stöðuljósi
  • Þjónusta og viðhald

    Bilanaleit, viðgerðir og fyrirbyggjandi viðhald á vélum, stýringum og raf- og tækjabúnaði.

  • Uppsetning

    Raflagnir, stýriskápar og tenging nýrra véla og búnaðar við framleiðslulínuna.

  • Ráðgjöf

    Val á búnaði, úrbætur á eldri kerfum og sjálfvirknivæðing — áður en ráðist er í fjárfestingu.

Dæmi úr verkefnum

Allt að 30% lægri rafmagnskostnaður í sundlaugum

Við höfum lækkað rafmagnskostnað sundlauga um allt að 30% með því að uppfæra gömul stýrikerfi. Nýju kerfin blanda vatnið á skilvirkari hátt og hægja á dælum og búnaði á nóttunni, þegar ekki er þörf á fullum afköstum.

Annar búnaður

Búnaður fyrir sjávarútveg og matvælavinnslu

Viðskiptavinir okkar eru útgerðir, fiskvinnslur og fiskeldisfyrirtæki í framleiðslu á laxi og bleikju — auk kjöt- og kjúklingavinnslu.

01

Fiskeldi

Vatnshreinsun, lýsing, fiskflutningur og vinnslubúnaður fyrir lax- og bleikjueldi á landi og í sjó.

  • UV-geislatæki
  • Ósonkerfi
  • Síur og filterar
  • Fiskeldisljós
  • Fiskdælur
  • Roðrifur
  • Vogir
  • Þrifalausnir
Spyrjast fyrir um fiskeldislausnir
02

Fisk- og matvælavinnslur

Vinnslu-, frysti- og hreinlætisbúnaður sem stenst kröfur matvælaframleiðslu — fyrir fisk, kjöt og kjúkling.

  • Vinnslulausnir
  • Lausfrystar
  • Karaþvottavélar
  • Roðflettivélar
  • Vogir
  • Vatnshreinsun
  • Aðgangsstýringar
  • Þrifalausnir
Spyrjast fyrir um vinnslulausnir
03

Skipalausnir

Vinnslubúnaður, dælur og þrifalausnir um borð í fiskiskipum — hannað fyrir aðstæður á sjó.

  • Vinnslulausnir í fiskiskip
  • Vakúmdælur
  • Þrifalausnir um borð
Spyrjast fyrir um skipalausnir
04

Sérsmíði úr ryðfríu stáli

Hönnun og smíði hjá Lavango Engineering — uppsetning og sjálfvirknivæðing á Íslandi, eða afhent beint til erlendra viðskiptavina.

Fá tilboð í sérsmíði

Vörumerki

Í samstarfi við leiðandi framleiðendur

Við erum söluumboð á Íslandi fyrir evrópska framleiðendur sem við þekkjum og treystum.

Vörulistar og tækniupplýsingar eru á síðum framleiðendanna. En besta leiðin er samtal — segðu okkur frá aðstæðum þínum og við finnum lausnina saman.

Hefjum samtalið
Raflagnir að tveimur UV-kerfum, snyrtilega lagðar í kapalstiga

Um okkur

Frá ráðgjöf til uppsetningar

Lavango ehf sérhæfir sig í sölu á búnaði og þjónustu fyrir íslenska fiskframleiðendur til lands og sjávar. Við vinnum með fyrirtækjum sem vilja vaxa og bæta reksturinn — og skilum árangri í sameiningu.

Teymið

  • Steinar Már Sveinsson

    Rekstrarstjóri · Lavango ehf

    Rafvirki og flugvirki að mennt með víðtæka reynslu af viðhaldi og uppsetningu véla, raf- og tækjabúnaðar. Sér um verkefnin frá fyrstu fyrirspurn til gangsetningar og eftirfylgni.

  • Kristján Karl Aðalsteinsson

    Framkvæmdastjóri · Lavango ehf

    Fæddur og uppalinn í Bolungarvík. Nam útflutnings- og markaðsfræði í Óðinsvéum og starfaði um árabil í Danmörku og Þýskalandi. Frá 2010 hefur hann starfað við ráðgjöf, sölu og markaðsmál tengd sjávarútvegi.

  • Vygandas Srébalius

    Lavango Engineering · Litháen

    Stýrir Lavango Engineering í Litháen, þar sem hönnun og smíði fer fram. Menntaður frá tækniskólanum í Klaipėda og hefur um árabil framleitt vélar og búnað fyrir kröfuharða matvælaframleiðendur víða í Evrópu.

Vantar þig búnað eða þjónustu?

Sendu okkur línu eða hringdu — við svörum fljótt og finnum lausn sem hentar.

869 1221 lavango@lavango.is Lyngás 13, 210 Garðabær

Senda fyrirspurn