Slægingarlína

Vinnslulausnir

Vinnslulausnir LAVANGO ehf ná til hráefnis sem kemur ferskt til fiskmarkaðar og landvinnslu. Við bjóðum lausnir fyrir slægingu, handflökun, snyrtingu og pökkun hráefnis. Þessi upptalning er einungis brot af okkar lausnum, að auki bjóðum við sérhannaðar lausnir samkvæmt óskum viðskiptavina. 

Hafið samband við sölumenn LAVANGO ehf og látið okkur aðstoða við val og hönnun á hentugri lausn fyrir þína vinnslu. Við byggjum á áratuga reynslu starfsmanna við val og útfærslur á fiskvinnslubúnaði.

Karahvolfarar til innmötunar á fiski í körum. Karakerfin frá okkur eru sjálfvirk og taka kör í öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband lavango@lavango.is og við finnum réttu lausnina fyrir þig.